Orðsending 2025
Alþjóðlegi dansdagurinn 29. Apríl
Eftir Mikhail Baryshnikov (Lettland/Bandaríkin)
Dansari og danshöfundur
Það er oft sagt að dans geti tjáð hið óræða. Gleði, sorg og örvænting verður sýnileg; líkamleg birtingarmynd sameiginlegrar viðkvæmni okkar. Með þessu getur dansinn vakið samkennd, hvatt til góðvildar og kveikt þrá til þess að græða frekar en að særa.
Sérstaklega nú – þar sem hundruð þúsunda þjást vegna stríðs, takast á við pólitískar óeirðir og rísa upp til að mótmæla óréttlæti – er mikilvægi einlægrar íhugunar ótvírætt. Það er þung byrði að leggja á líkamann, á dansinn, á listina. Samt sem áður er listin enn besta leiðin til þess að gefa hinu óræða form og við getum byrjað með því að spyrja okkur sjálf: Hvar liggur minn sannleikur? Hvernig heiðra ég sjálfan mig og mitt samfélag? Gegn hverjum ber ég ábyrgð?
Um Mikhail Baryshnikov:
Fæddur í Riga, Lettlandi og búsettur í New York borg, Mikhail Baryshnikov er talinn vera einn af merkustu dönsurum okkar tíma. Á meiri en 50 ára starfsferli hans innan dans, leiklistar, sjónvarps og kvikmynda, hefur hann unnið með heimsfrægum danshöfundum og leikstjórum. Eftir glæsilega byrjun með Kirov Ballettnum í Leníngrad, fór hann vestur yfir hafið árið 1974 og var aðaldansari hjá American Ballet Theatre (ABT). Árið 1978 gekk hann til liðs við New York City Ballet, þar sem hann starfaði með George Balanchine og Jerome Robbins. Árið 1980 varð hann listrænn stjórnandi ABT, þar sem hann næsta áratuginn kynnti nýja kynslóð dansara og danshöfunda. Árið 1990, með stofnaði Mr. Baryshnikov White Oak Dans Verkefnið með danshöfundinum Mark Morris með því markmiði að víkka út efnisskrá og sýnileika á amerískum nútímadansi. Árið 2005 setti hann á fót Baryshnikov Arts í New York borg, skapandi rými sem hannað var til að styðja við fjölbreytta listamenn víðsvegar að úr heiminum.
Þýðandi Lilja Björk Haraldsdóttir, formaður Félags íslenskra listdansara.



