Alþjóðlegi dansdagurinn 29. apríl 2026
Íslenskt Ávarp 

 

Við drögum andann. Hjartað slær taktinn. Hugurinn reikar. Rýmið faðmar okkur. Jörðin styður við okkur. Frumurnar iða. Innra með okkur er hreyfing. Inní okkur er dans. Ördans. Smá dans. Líkaminn dansar. Við erum að dansa. 

Við erum dansarar. Hreyfum okkur í takt við lífið. Stundum finnum við flæðið. Stundum dettum við úr takti. Stundum er dansinn áreynslulaus, stundum krefjandi. Stundum dönsum við dans annarra. Stundum dönsum við okkar eigin dans. 

Dansinn er allt og allskonar.  Dansinn er svona og hinsegin. Flókinn og einfaldur. Heilagur og himneskur. Getur jafnvel virst yfirnáttúrulegur. Hann getur líka verið óþægilegur og skrýtinn. En hann er fyrst og fremst líkamlegur og kemur úr kjarnanum okkar. Líkamanum. 

Að dansa er að vera. Vera lifandi. Vera í augnablikinu. Dansinn á heima í augnablikinu. Hann birtist jafnskjótt og hann hverfur. Það er ekki hægt að festa hann. Hvorki í tíma né rými. Hann er hverfull. Ósnertanlegur. En hann lifir innra með okkur. Í líkamanum. 

Í dansinum tengjumst við fleiri líkömum. Við lifum á tímum þar sem það hefur aldrei verið auðveldara að tengjast öðrum en á sama tíma erum við að fjarlægjast hvort annað, líkamlega. Líkamar eru á hreyfingu um allan heim. Yfir lönd og landamæri. Af fúsum og frjálsum vilja, en líka af illri nauðsyn. Á flótta. Í leit að öryggi. Í leit að frelsi. Í leita að því að tilheyra. Í leit að tengingu. Tengingu við aðra líkama.

Í dag minnumst við þess að dansinn tilheyrir ekki bara sumum, heldur okkur öllum. Við eigum öll líkama og allir líkamar hafa möguleika á því að tjá sig og tengjast. Í því felst frelsi sem er ekki sjálfgefið. Frelsið er brothætt. Að hreyfa sig frjálslega er einföld en djúp athöfn. Leið til að finna fyrir okkur. Finna fyrir líkamanum, rýminu sem við deilum og tímanum sem við lifum í. Þegar við hreyfum líkamann, án ótta og án hafta, opnast rými þar sem við erum öll dansarar. Þar verður dansinn ekki aðeins listform, heldur réttur okkar, upplifun og sameiginlegt tungumál sem tengir okkur saman. 

Dragðu andann. Hlustaðu á hjartað. Leyfðu huganum að reika. Faðmaðu rýmið. Leyfðu jörðinni að styðja við þig. Finndu frumurnar iða. Dansaðu. 

Steinunn Ketilsdóttir
Danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins